Valmynd
Heim
Fréttir
Myndasafn
Spurt og svarað
Vín mánaðarins
Glersalurinn
Borðbúnaðarleiga
Veisluhald ehf.
Hafa samband
Krækjur
Valmöguleikar
Setja í uppáhalds
Gera að upphafssíðu
Prenta út

Brúðkaupsveislur í sumar
Skrifað af Stefán Ingi   

Fyrir framan barinnNú er sumarið að bresta á og mikið búið að panta hjá okkur í Glersalnum. Einhverjar dagsetningar eru þó enn lausar ef einhverjir eru að spá í að gifta sig nú í sumar. Nú er helsti brúðkaupstíminn ( sumarið ) rétt handan við hornið og það þarf að ganga frá öllu í tíma til þess að minnka stressið sem vill oft skapast síðustu dagana fyrir brúðkaup.

Lesa meira...
 
Brúðkaupsskórnir
Skrifað af Freygerður Anna   

VíðidalurNú fer að líða að þeim árstíma þar sem brúkaupsveislur eru hvað vinsælastar. Það er því um að gera að fara að ganga til  þá skó sem ráðgert er að vera í á brúðkaupsdaginn og á það ekki síður við tilvonandi brúðguma en brúðina.  Það vill  enginn lenda í því að fá hælsæri í miðri veislu og minnast brúðarvalsins með sársaukafullu ívafi.

Lesa meira...
 
Eitt það vinsælasta síðasta sumar
Skrifað af Stefán Ingi   

Við hjá Veisluhaldi höfum nú boðið upp á súkkulaðifondupottana okkar í tæpt ár. Á þessum tíma hafa fjölmargir ánægðir viðskiptavinir tekið pottanan á leigu og komið veislugestum sínum skemmtilega á óvart með glæsilegri byrjun á góðri veislu. Oft er fólk í vandræðum með hvað bjóða eigi upp á með fordrykknum og hvernig megi gera veisluna eftirminnilega frá fyrsta andartaki. Við hjá Veisluhaldi höfum lausnina fyrir þig. Hægt er að velja milli fjögurra og þriggja hæða fondue potta þar sem gestir geta dýft meðal annars ferskum ávöxtum inn í gómsætan súkkulaði foss.

Lesa meira...
 
Fermingar undirbúningur
Skrifað af Stefán Ingi   
Nú þegar eru margir farnir að undirbúa fermingarnar á næsta ári.  Með því að skoða dagatalið er hægt að sjá hvaða dagsetningar eru þegar bókaðar. Hafðu samband og við sendum þér tilboð í fermingarhlaðborðið okkar.
 
Vín mánaðarins
Skrifað af Stefán Ingi   
Gott að dreypa á góðum vínumKrækjan "Vín mánaðarins" hér til vinstri hefur hlotið einstaklega góðar viðtökur hjá lesendum Veisluhalds.is. Vín mánaðarins er sett fram af hinum margrómaða vínþjóni Harry sem hefur getið sér gott orð um alla Evrópu og þó víðar væri leitað.  Harry hefur verið kallaður til dómara starfa í mörgum frægum vínþjóna keppnum víðast hvar í Evrópu og alltaf verið sér og landi til mikils sóma.  núna á...
Lesa meira...
 
Úr myndaalbúmi
Könnun
Hver verður þemaliturinn í brúðkaupinu þínu?